Leita

Reykofn 4 hillur sjálfvirkur

15% sumarafsláttur - gildir til 31.05.2023
Tilvalinn til að reykja rif, kjúkling, lamb, naut, fisk, pyslur, bjúgur, grænmeti, villibráð, ost eða í raun hvað sem hugurinn girnist.

Sjálfvirki reykofninn frá Bradley er frábær fyrir þá sem vilja útbúa sælkera mat heima og/eða fyrir þá sem einfaldlega elska hið einstaka bragð af reyktum matvælum.  Sjálfvirki Bradley reykofninn er einfaldur í notkun og hentar því jafnt byrjendum sem og fagmönnum. 

Stafrænt stýrikerfið sér um að:
  • Hitastig: viðhalda settu hitastigi ásamt því að birta raunhitastig.
  • Ofntími: stilla hve lengi ofninn á að vera í vinnslu (eldunartími). Þegar þessi tími er liðinn slekkur hita element á sér.
  • Reyktími: stilla hve lengi reykofninn á að reykja, þessi tími getur verið óháður eldunartíma.
Bradley reykofninn samanstendur af reykhúsi og reykgjafa, sem brennur viðarkurls brennslukubba (sem hægt er að fá með mismunandi brögðum) í 20 mínútur í senn svo að hiti haldist stöðugur, með sjálfvirki skiptingu á kubbum á 20 mínútna fresti. Það kemur í veg fyrir að háhita gas, sýrur og resín skemmi fyrir reykjabragðinu. Bradley reykofninn framleiðir hreinan og volgan reyk í allt upp í 9 klst án þess að hafa þurfi afskipti af honum. Það er bæði hægt að kald og heit reykja í reykofninum. Til að kald reykja þarf að hafa kaldreykinga millistykki aukalega.

  • Hita element inní ofni: 500v
  • Hita element fyrir sagkökur: 125v
  • Rafmagn: 220-240v / 50 HZ -2,5 AMP
  • Hámarks hitastig inn í ofni: 160°
  • Innra byrði: Ryðfrítt stál 
  • Ytra byrði: Epoxýhúðað stál 
  • Reykofninn er léttur og auðvelt að bera hann og færa á milli staða. 
  • Ytra rúmmál: Breidd 43 sm, dýpt 37 cm, hæð 80 sm.
  • Innra rúmmál: Breidd 38 sm, dýpt 29 sm, hæð 65 sm. 
  • 4 krómhúðaðar hillur
  • Eldunarflötur: 1452 fsm
  • Þyngd ásamt pakkningu: 26 kg
  • Stærð pakkningar: Breidd 51 sm, dýpt 46 sm, hæð 86 sm. 

Leita