Leita

Skilmálar

Upplýsingar um seljanda:

Lely Center Ísland ehf., kt. 450109-0100. Krókháls 5F, 110 Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á landbúnaðartækjum, þjónustu við þau og sölu tengdra rekstrarvara í gegnum heildsölu og netsölu. Virðisaukaskattsnúmer Lely Center Ísland ehf. er 101577.

Verð:

Verð í vefverslun okkar eru gefið upp með virðisaukaskatti. Virðisaukaskattur er síðan tilgreindur á reikningi við frágang pöntunar. Vinsamlega athugið að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara vegna gengismála, rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Greiðslumöguleikar:

Boðið er uppá að greiða með greiðslukorti og debetkorti í netverslun www.lci.is Að auki er hægt að hafa samband við sölumenn okkar og skrá vöru í  viðskiptareikning viðkomandi ef að skilyrði til þess eru uppfyllt. 

Afhendingarskilmálar:

Hægt er að sækja pantanir í Lely Center Ísland að Krókhálsi 5F, 110 Reykjavík frá 08:00 – 17:00 mánudaga til fimmtudaga en 08:00 – 16:00 á föstudögum. Sömuleiðis er hægt að sækja vöruna í verslun okkar á Akureyri að Óðinsnesi 2, 603 Akureyri. Eiga þar sömu opnunartímar við en það getur tekið a.m.k. einn vinnudag að senda vöruna til Akureyrar frá  Reykjavík ef hún er ekki til í versluninni á Akureyri við móttöku pöntunar.

Að auki er hægt að fá vöruna senda með Íslandspósti. Ef að verslað er fyrir yfir 15.000,- kr. og varan er greidd í gegnum greiðslusíðu netverslunarinnar er sendingarkostnaður felldur niður. Undantekning er gerð á þessu ef um er að ræða rúmfreka og / eða þunga vöru, einnig efnavörur eða aðrar vörur sem þarfnast sérstakrar meðhöndlunar. Fyrir pantanir sem ekki ná 15.000,- kr. markinu eru innheimtar 3.500,- kr. sendingargjald. 

Hægt er að óska eftir því að pöntun sé send á aðra flutningsaðila, t.a.m. Flytjanda og Landflutninga. Fyrir það er innheimt 5.000.- kr. afgreiðslugjald.

Boðið er upp á að vörunni sé komið út á flugvöll í innanlandsflug. Fyrir það er innheimt 5.000,- kr.  afgreiðslugjald.

Afhendingartími er áætlaður 2-3 dagar frá því að pöntun er gerð og fer eftir útburðarþjónustu póstsins á heimasvæði kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur:

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaupin og er varan endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt. Varan skal vera ónotuð, henni sé skilað í góðu lagi, í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Skilafresturinn hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Hægt er að endursenda vöru til Lely Center Ísland ehf. að Krókhálsi 5F, 110 Reykjavík eða Óðinsnesi 2, 603 Akureyri. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenda. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Varnarþing:

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Hafa samband:

Þér er velkomið að hafa samband í gegnum netfangið Info@lci.is eða í síma 414-0000 fyrir verslun í Reykjavík eða 464-8600 fyrir verslunina á Akureyri ef einhverjar spurningar vakna.

Öryggi og persónuvernd á vefnum:

Þegar þú notar vef Lely Center Ísland ehf. þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Lely Center Ísland ehf. miðlar þeim ekki til annara.

Lely Center Ísland ehf. virðir friðhelgi perónuupplýsinga viðskipta vina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.

 Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)

Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði Lely Center Ísland ehf., www.lci.is  er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Lely Center Ísland ehf. þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Lely Center Ísland ehf. getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar. 

 

Notkun Lely Center Ísland ehf. á vafrarakökum

Með því að samþykkja skilmála Lely Center Ísland ehf. um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

  • bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
  • að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
  • að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
  • að birta notendum auglýsingar
  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið,

Lely Center Ísland ehf. mun í framtíðinni mögulega nota Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við skilmála GDPR frá 2018

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

 

Leita