Það mætti kalla eikar bragð viðarkubbana þá fjölhæfustu, enda passar hann mjög vel við flestar kjötafurðir. Milt reykjarbragð með litlu sem engu eftirbragði. Passar einkar vel við fuglakjöt, naut, svín, lamb og villibráð. 120 stk í pakka.
Lykilinn að velgengni Bradley reykofnanna eru bragðviðarkubbarnir. Kubbarnir eru framleiddur úr harðviði sem er þjappað saman í nákvæmu magni, undir ákveðnum þrýstingi og réttum þéttleika. Bragðið af reyknum ákvarðast svo út frá þeim mismunandi viðartegundum sem verið er að brenna.
Bradley reykofninn brennur hvern viðarkubb í 20 mín og framleiðir þannig hreint reykjabragð. Þegar kubburinn hefur brunnið ýtir næsti kubbur honum af hita plattanum og niður í vatnsskál þar sem að slökknar á honum, svo að hann myndi ekki sót. Þessi hringrás heldur svo áfram þar til viðarkubbarnir klárast.
Þegar viður brennur verður reykjarbragðið til á byrjunarmínútum brunans. Þegar viðurinn hefur náð nægum hita til að brenna einn gefur hann frá sér ýmis úrgangsefni. Þessi úrgangsefni geta bæði eyðilagt bragðið og útlitið af reyktu matvörunni. Þegar viðurinn kemst á þetta stig brunans þá er mjög erfitt að hafa stjórn á reykferlinu. Bradley viðarkubbarnir leysa þennan vanda.
En viðarkubbarnir leysa ekki bara vandann varðandi óæskilegan hita heldur framleiða kubbarnir reyk sem er fjórum sinnum hreinni en reykur sem kemur frá álíka lausu viðarkurli sem notað er t.d. á reykjar-pönnun og boxum.
Skráðu þig hér og fáðu upplýsingar um nýjar vörur.