Leita

Viðarkurl Bjór 24 stk

Bjór bragðkubbarnir eru úr eik og gefa frá sér ristað sítrus bragð og ilm. Parast vel við naut, kjúkling, rif og pylsur. Einnig er sérstaklega hægt að mæla með því að reykja sveppi og kald-reykja ost með bjór bragðkubbunum - eitthvað til að breyta venjulegum hamborgara í eitthvað stórkostlegt!  24 stk í pakka. 

Lykilinn að velgengni Bradley reykofnanna eru bragðviðarkubbarnir. Kubbarnir eru framleiddur úr harðviði sem er þjappað saman í nákvæmu magni, undir ákveðnum þrýstingi og réttum þéttleika. Bragðið af reyknum ákvarðast svo út frá þeim mismunandi viðartegundum sem verið er að brenna. 

  • Elri (alder) og hlynur (maple) gefa ríkt og sérstakt bragð sem oft er notað fyrir sjávarrétti, svínakjöt og beikon. 
  • Sterkara og mjög skýrt bragðið af mesquite og hnetu (hickory) er oft notuð til að reykja naut og svína kjöt, eins og t.d. svínabóg og nauta brjóst (beef brisket).
  • Epla og krisuberja viðirnir gefa frá sér sætara og mildara reykbragð, oft notað fyrir fuglakjöt og villibráð.
  • Sjá bragðhandbók í myndum.
  • Hægt er að nota Bradley viðarkubbana með á öll grill og reykofna.

Bradley reykofninn brennur hvern viðarkubb í 20 mín og framleiðir þannig hreint reykjabragð. Þegar kubburinn hefur brunnið ýtir næsti kubbur honum af hita plattanum og niður í vatnsskál þar sem að slökknar á honum, svo að hann myndi ekki sót. Þessi hringrás heldur svo áfram þar til viðarkubbarnir klárast. 

Þegar viður brennur verður reykjarbragðið til á byrjunarmínútum brunans. Þegar viðurinn hefur náð nægum hita til að brenna einn gefur hann frá sér ýmis úrgangsefni. Þessi úrgangsefni geta bæði eyðilagt bragðið og útlitið af reyktu matvörunni. Þegar viðurinn kemst á þetta stig brunans þá er mjög erfitt að hafa stjórn á reykferlinu. Bradley viðarkubbarnir leysa þennan vanda. 

En viðarkubbarnir leysa ekki bara vandann varðandi óæskilegan hita heldur framleiða kubbarnir reyk sem er fjórum sinnum hreinni en reykur sem kemur frá álíka lausu viðarkurli sem notað er t.d. á reykjar-pönnun og boxum.

Leita