Leita

Mótorolía 20L - Semi synthetic

20 lítra brúsi af Mótorolíu - semi synthetic, SAE 10W-40.

Þessi mótorolía er hönnuð fyrir nýjustu fjórgengis dísilvélar sem notaðar eru í landbúnaði, fyrir önnur samgöngutæki, o.m.fl. Hún uppfyllir allar ströngustu kröfur og hægt að nota hana fyrir vélar, þ.á.m. dráttarvélar sem starfa við erfiðustu aðstæður, allar ársins hring.

Með getu sinni til að dreifa sótögnum í olíunni er komið í veg fyrir meira slit og getur hún því lengt skiptatímabil. Með þessari hreinsunaraðgerð er vélinni haldið mun hreinni en ella og þannig er frekar komið í veg fyrir að skaðlegar útfellingar myndist.

Samkvæmt framleiðanda uppfyllir olían allar kröfur skv.  EURO V, VI and Tier 4 staðla.

Mótorolían uppfyllir eftirfarandi staðla:

  • ACEA E6, E7 og E9-16
  • API CK-4 og SN


Leita