Þurrkofn Deluxe
Hágæða þurrkofn sem er afkastamikill og einfaldur í notkun. Í Atacama pro deluxe þurrkofninum getur þú m.a. þurrkað sveppi, fisk, ber, ávexti, kryddjurtir, grænmeti, kjöt og fl., en viðhaldið gæðum og bragði.
Til að ná góðum árangri í þurrkun matvæla þarf hitastig, lofthraði og tími að vinna vel saman. Stýrikerfið í Atacama þurrkofninum er með þægilegum stýriskjá þar sem þú getur á auðveldan hátt breytt og stjórnað þessum mikilvægu þáttum og þar með tryggt góð gæði þurrkunnar. Einnig er hægt að færa blásara á milli enda til að stytta þurrkunartíma og ná enn jafnari þurrkun.
Hugmyndir af matvælum til að þurrka: Sveppir, tómatar, epli, bananar, heimagerður harðfiskur (í bitum tekur það c.a. 34 klst.), búa til eigið krydd úr þurrkuðu grænmeti og jurtum, þurrkað kjöt (beef jerky) og þurrkað hangikjöt!
- Ryðfrítt stál og styrkt nýlon
- Digital stjórnborð
- 6 skúffur úr ryðfríu stáli
- 5 sjálfvirk þurrkunarkerfi
- 1 EVO þurrkunarkerfi
- 1DELAY þurrkunarkerfi, sem seinkar byrjunartíma
- "Wide flow" sérútbúin tækni hjá Tre Spade, sem sér um að halda jafnri þurrkun á öllum skúffum
- Þurrskápur sér um að halda þurrkunarskilyrðum stöðugum þegar þurrkunarkerfi hefur lokið þurrkun og þar til notandi fjarlægir innihaldið
- Þurrksvæði: 5500 sm2
- Þyngd: 5,5 kg
- Mál: 27x26x50 sm
- Rafmagn: 220-240V/40-60Hz
- Wött: 500W